Tómas Þorvaldsson landaði í Grindavík í gær

2173. Tómas Þorvaldsson GK 10 ex  ex Sisimiut GR 6-500. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2024.

Það var líf og fjör við Grindavíkurhöfn í gær en frystitogarinn Tómas Þorvaldsson GK 10 kom þar inn um morguninn til löndunar.

Jón Steinar tók þessar myndir en afli togarans var um 1009 tonn upp úr sjó eftir 40 daga veiðiferð.

Það er Þorbjörn hf. sem gerir togarann út en hann hét upphaflega Arnar HU 1 og síðar Sisimiut GR 6-500.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd