Sigurbára VE 249

1631. Sigurbára VE 249 ex Fálkinn NS 325. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Sigurbára VE 249 sem hér sést hét upphaflega Fálkinn NS 325 og var smíðaður 1982 í Bátalóni fyrir aðila á Bakkafirði.

Fálkinn var keyptur til Vestmannaeyja árið 1985 og fékk nafnið Sigurbára VE 249.

Báturinn, sem er 30 brl. að stærð, var seldur til Ólafsvíkur árið 1987 þar sem hann fékk nafnið Sveinbjörg SH 317.

Frá árinu 1989 og fram til ársins 2014 bar báturinn nöfnin Sveinbjörg ÁR 317, Vörðufell GK 205, Vörðufell SF 200, Gæfa SF 2, Mundi Sæm SF 1, Goði AK 50 og Lundaberg AK 50.

Árið 2014 fékk báturinn það nafn sem hann ber í dag, Vonin KE 10. Báturinn er í eigu Köfunarþjónustu Sigurðar ehf. og heimahöfn hans Keflavík.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd