Stefnir ÍS 28 seldur til Grænhöfðaeyja

1451. Stefnir ÍS 28 ex Gyllir ÍS 261. Ljósmynd Hólmgeir Austfjörð 2019.

Skuttogarinn Stefnir ÍS 28 hefur verið seldur til Cabo Verde og lýkur þar með nær hálfrar aldar vestfirskri útgerð skipsins. 

Frá þessi segir í Bæjarins besta

Þar segir jafnframt að fulltrúar kaupenda séu komnir til Ísafjarðar og vinna við að gera skipið klárt fyrir brottför.

Stefnir ÍS 28 hét upphaflega Gyllir ÍS 261 og var smíðaður árið 1976 í Flekkefjord Slipp & Maskinfabrikk A/S í Flekkefjord í Noregi fyrir Útgerðarfélag Flateyrar hf. á Flateyri.

Árið 1993 var Gyllir ÍSS 261 seldur til Ísafjarðar en stofnað var sérstakt félag um kaupin sem hét Þorfinnur hf. og Flateyrarhreppur átti 30% í því fyrirtæki.

Heimahöfn hans var áfram Flateyri þar til um miðjan febrúar árið 1995 en þá færðist hún yfir á Ísafjörð.

Þorfinnur var síðar sameinaður Íshúsfélagi Ísfirðinga hf. sem svo aftur sameinaðist Hraðfrystihúsinu – Gunnvöru hf. árið 2000. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd