Sylvia Earle

IMO 9872327. Sylvia Earle. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2024.

Skemmtiferðaskipið Sylvia Earle kom til Húsavíkur í dag eftir siglingu frá Akureyri.

Sylvia Earle var smíðað árið 2022 og er af Ulstein X-BOW gerð. Skipið er smíðað til siglinga við Suðurskautið sem og á norðlægum slóðum.

Lengd þess er 104 metrar og breidd 18 metrar og það mælist 8,076 GT að stærð.

Það tekur um 132 farþega.

Skipið er svokallað leiðangursskip. Það er gert út af Aurora Expeditions sem einnig gerir út Greg Mortimer sem er sömu gerðar.

Skipið siglir undir fána Bahamas með heimahöfn í Nassau.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd