
Frystitogarinn Baldvin Njálsson GK 400 kom til olíutöku í Örfirisey í kvöld og voru þessar myndir teknar þá.
Baldvin Njálsson GK 400 var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon Vigo S.A í Vigo og kom í stað eldra skips sem selt var til Rússlands.
Hann kom til landsins í lok nóvember árið 2021.
Baldvin Njálsson GK 400 er 65,6 metrar að lengd og 16 metrar að breidd. Hann mælist 2.879 brúttótonn að stærð. Hann er búinn 3.000 kW Wärtsilä aðalvél.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution