
Skýjaborgin ÞH 118 sem áður hét Jón Eggert ÍS 32 var smíðuð í Mótun í Hafnarfirði og hét upphaflega Forkur ÁR 400.
Báturinn var smíðaður árið 1992 en kom í Húsavíska flotann þegar Júlíus Bessason og Sölvi heitinn Jónsson keyptu hann árið 2002.
Þá leysti hann af hólmi minni bát sem þeir félafar áttur og lesa má um hér. Árið 2006 var Skýjaborgin seld til Reykjavíkur þar sem hún varð RE 118.
Eins og áður segir hét báturinn upphaflega Forkur ÁR 400 en annars er nafnaröðin svona:
Forkur ÁR 440, Fiskines SU 65, Jón Eggert ÍS 32, Skýjaborgin ÞH 118, Skýjaborgin RE 118, Hafþór NK 44, Hafþór SU 144, Margrét ÞH 55, Þorsteinn VE 18, Margrét VE 8 og á dögunum fékk hann nanfið List ÍS 153 með heimahöfn á Flateyri.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution