Sigurfari ST 30

1916. Sigurfari ST 30 ex Sigurfari ÓF 30. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson.

Rækjuskipið Sigurfari ST 30 frá Hólmavík siglir hér til hafnar í Reykjavík um árið og Jón Páll fangaði það á filmu.

Sigurfari hét upphaflega Stafnes KE 130 og var smíðað í Kolvereid í Noregi árið 1988 fyrir Keflvíkinga. Skipið er 34,72 metrar að lengd, 8 metra breiður og mælist 176 brl. að stærð. 

Stafnes KE 130 var selt til Ólafsfjarðar árið 1991 og kom í stað Sigurfara ÓF 30 sem fór upp í kaupin. Fékk skipið nafnið Sigurfari ÓF 30

Sigurfari ÓF 30 var seldur Hólmadrangi hf. á Hólmavík vorið 1998 og hélt nafninu en varð ST 30.

Sigurfari var seldur til Noregs í desember 1999.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd