
Sléttunúpur ÞH 272 er hér við bryggju á Húsavík en í íslenska flotanum hét báturinn upphaflega Sigrún ÍS 900.
Báturinn bar síðar nöfnin Geir SH 217 og Gústi í Papey SF 88 en þegar hann var keyptur til Raufarhafnar árið 1995 fékk hann nafnið Sléttunúpur ÞH 272.
Báturinn staldraði stutt við á Raufarhöfn og var seldur úr landi 1996. Til Írlands ef ég man rétt.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution