
Á þessari mynd frá Fonsa eru kallarnir á Hugborginni SH 87 á dragnótaveiðum við Snæfellssnes.
Báturinn, sem var 29 brl. að stærð, hét upphaflega Haffari RE 126 og var smíðaður árið 1972 hjá Trésmíðaverkstæði Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði.
Árið 1973 var báturinn seldur til Ólafsvíkur þar sem hann fékk nafnið Hugborg SH 173 en frá árinu 1975 var Hugborg SH 87.
Hugborg SH 87 strandaði haustið 1994 og í Morgunblaðinu þann 30. september mátti lesa eftirfarandi frétt:
Allri áhöfn, alls fjórum mönnum, var bjargað af Hugborgu SH 87, 29 tonna eikarbáti frá Ólafsvík, sem strandaði skammt frá Hellissandi upp úr klukkan 22 í gærkvöldi.
Báturinn er mikið brotinn og er talinn ónýtur en mikill sjór var kominn í bátinn þegar mönnunum var bjargað samkvæmt upplýsingumbjörgunarsveitarmanna og lögreglu í Ólafsvík.
Tilkynning barst um strandið kl. 22.20 og voru björgunarsveitirnar Sæbjörg í Ólafsvík og-Björg frá Hellissandi strax kallaðar út og TF-Sýn þyrla Landhelgisgæslunnar var einnig send á strandstað.
Klukkan 23.08 barst tilkynning um að tekist hefði að bjarga mönnunum heilum á húfi um borð í gúmmíbát björgunarsveitarmanna frá Ólafsvík og var þá þyrlu Gæslunnar snúið við. Mennirnir voru síðan fluttir um borð í trilluna Rán SH 550 frá Ólafsvík, sem flutti þá í land í Ólafsvík.
Samkvæmt upplýsingum björgunarsveitarmanna amaði ekkert að mönnunum. Þokkalegt veður var þegar skipið strandaði en strandstaðurinn er á svokallaðri Balatá við Keflavíkurbjarg milli Hellissands og Rifs.
Hugborg SH 87 var tekin afskipaskrá 14. desember 1994.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution