Svanur KE 90

929. Svanur KE 90 ex Sandvík KE 90. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Svanur KE 90, sem hér sést koma að landi í Grindavík, var smíðaður í Gilleleje í Danmörku árið 1945 og mældist 38 brl. að stærð. 

Svanur var keyptur til Íslands árið 1947 og fékk nafnið Muninn II GK 343.

Eigendur hans voru Ólafur, Sveinn og Axel Jónssynir í Sandgerði. 1960 var hann seldur Gísla J. Halldórssyni í Keflavík sem nefndi bátinn Þorstein Gíslason KE 90. 1966 var sett 240 hestafla GM aðalvél í hann og í árslok sama árs kaupir Hraðfrystihús Keflavíkur hf. hann og nefnir Sandvík KE 90. 

Í nóvember 1970 fær hann Svansnafnið þegar Ingólfur R. Halldórsson í Keflavík kaupir hann. 1987 er Karl Sigurður Njálsson skráður meðeigandi Ingólfs að bátnum.

Ljósfiskur eignaðist bátinn í kringum aldarmótin og gerði til ársins 2003. Eftir það lá hann í Njarðvíkurhöfn þangað til hann var dreginn á land í Helguvík og rifinn í febrúarmánuði árið 2010.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd