Ný Clepopatra 36 til Noregs

Varde VL-94-AV. Ljósmynd Trefjar 2024.

Útgerðarfélagið Tøkje Båt AS í Austevoll í Noregi fékk nú á dögunum afhentan nýjan Cleopatra 36 bát frá Bátasmiðjunni Trefjum í Hafnarfirði.

Það er Ole Tøkje sem stendur að útgerðinni en hann verður jafnframt skipstjóri á bátnum.

Nýj báturinn heitir Varde og er 10.99 metrar á lengd og mælist 11 brúttótonn að stærð.

Aðalvél bátsins er af gerðinni FPT C90 410hö tengd ZF286IV gír.

Siglingatæki hans eru af gerðinni Olex og Simrad.

Báturinn er einnig útbúin með vökvadrifnum hliðarskrúfum að framan og aftan sem tengdar eru sjálfstýringu bátsins.

Báturinn er útbúinn til netaveiða en veiðibúnaður hans kemur frá Noregi.

Lest bátsins rúmar 15 stk. 380 lítra fiskikör. 

Lífbátur og annar öryggisbúnaður bátsins kemur frá Viking.

Stór borðsalur og fullbúin eldunaraðstaða er í brúnni.  Svefnpláss er fyrir þrjá í lúkar.  Salerni með sturtu.

Báturinn er nýkominn til Noregs og hefur veiðar á næstu dögum.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd