Þorleifur við bryggju á Húsavík

1452. Þorleifur EA 88 ex Hrönn ÞH 275. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1984.

Þarna er verið að landa úthafrækju úr Þorleifi EA 88 á Húsavík, sennilega sumarið 1984.

Báturinn hét upphaflega Hrönnn ÞH 275 frá Raufarhöfn og var smíðaður fyrir Þorgeir Hjaltason í Bátasmiðjunni Vör h/f á Akureyri árið 1976.

Árið 1982 var báturinn seldur til Grímseyjar þar sem hann fékk nafnið Þorleifur EA 88. Árið 1988 fékk hann nafnið Guðrún Jónsdóttir SI 155 og heimahöfn á Siglufirði. Árin 1990 – 2001 var báturinn með heimahöfn á Ólafsfirði og hét Guðrún Jónsdóttir ÓF 27. 

Árið 2001 varð hann aftur Guðrún Jónsdóttir SI 155 sem hann bar þar til hann fékk núverandi nafn árið 2008. Eigandi bátsins er Rauðka ehf. á Siglufirði.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd