
Kópnes ST 46 kemur hér til hafnar á Húsavík þann 15. júlí árið 2003 þeirra erinda að láta gera við rækjutrollið.
Báturinn hét upphaflega Héðinn ÞH 57, smíðaður í Noregi fyrir Húsvíkinga árið 1960.
Héðinn ÞH 57 var seldur Fiskanesi h/f í Grindavík árið 1965 og fékk þá nafnið Geirfugl GK 88.
Fyrrihluta árs 2001 var Geirfuglinn seldur til Hólmavíkur þar sem það fékk nafnið Kópnes ST 46 og var í eigu samnefnds fyrirtækis.
Kópnes var gert út á rækju og í byrjun september 2004 sökk báturinn 27 sjómílum nnv. af Skagatá eftir að óstöðvandi leki kom að honum.
Kaldbakur EA bjargaði áhöfninni, þrem mönnum.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution
Þessi var búinn að skila miklum afla á land þegar hann hvarf sjónum okkar.
Líkar viðLíkar við