
Askur GK 65 kemur hér að landi í Grindavík í marsmánuði árið 2006 en síðar það ár fékk hann nafnið Már GK 265.
Og það var ekki eina nafnabreytingin það ár því báturinn var seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fékk nafnið Ársæll Sigurðsson HF 80.
Upphaflega hét Bjarni KE 23 og var 11,70 brl. að stærð búinn 235 hestafla Volvo Penta. Smíðaður í Bátalóni árið 1987.
Síðar hét hann Bjarni BA 65 áður en hann fékk það nafn sem hann ber á myndinni.
Báturinn hafði verið lengdur árið 1995 í 13,97 metra og er í dag 21,59 BT að stærð. Í honum er 300 hestafla Volvo Penta frá árinu 1998. Þá var sett á hann pera.
Haustið 2012 var Ársæll Sigurðsson HF 80 seldur og fékk báturinn nafnið Kæja ÍS 19 með heimahöfn í Súðavík.
Á fyrrihluta árs 2014 fær báturinn nafnið Hreggi AK 85 og var í eigu samnefnds fyrirtækis á Akranesi.
Árið 2021 er Hreggi kominn til Hólmavíkur þar sem fékk nafnið Blær ST 85.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution