
Sæúlfur ÞH 188 kemur hér að landi á Húsavík um árið en hann var gerður út af Karli Bjarkasyni.
Sæúlfur var smíðaður árið 1962 í Bátalóni í Hafnarfirði og var tæpar þrjár brúttórúmlestir að stærð.
Upphaflega hét hann Mardís EA 164 með heimahöfn í Grímsey. Þaðan fór hann til Húsavíkur árið 1968 og varð ÞH 33. Árin 1970-1978 var Mardís á Stöðvarfirði og bar einkennisstafina SU og númerið 64.
Árið 1978 er báturinn kominn aftur til Húsavíkur þar sem hann fékk nafnið Blöndi ÞH 25 sem hann bar þar til hann fékk Sæúlfsnafnið árið 1982.
Sæúlfur var tekinn af skipaskrá haustið 1995.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution