Árfari HF 182 á Húsavík

27. Árfari HF 182 ex Kofri RE 27. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Tappatogarinn Árfari HF 182 hét upphaflega Björgvin EA 311 frá Dalvík.

Hann var einn 12 tapatogaranna sem smíðaðir voru í Austur-Þýskalandi fyrir Íslendinga og þegar þessar myndir voru teknar á Húsavík stundaði hann rækjuveiðar.

Miðinn frá Hauki er svona:

0027….Björgvin EA 311… TF-RW. Skipasmíðastöð: V.E.B. Volkswerft. Stralsund. 1958. Lengd: 35,72. Breidd: 7,32. Dýpt: 3,37. Brúttó: 249. U-þilfari: 205. Nettó: 80. Mótor 1958 MWM 800 hö. Ný vél 1978 Brons 736 kw. 1000 hö. 

Kom Akureyrar 23. Des. 1958 og hélt þaðan til Dalvíkur eftir stutta viðstöðu. 

Björgvin EA 311. Útg: Útgerðarfélag Dalvíkinga h.f. Dalvík. (1959 – 1973). Björgvin ÍS 301. Útg: Björgvin h.f. Súgandafirði. (1973 – 1974). Björgvin ÍS 301. Útg: Hraunhöfn h.f. Reykjavík. (1974 – 1977). Björgvin RE 159. Útg: Hraunhöfn h.f. Reykjavík. (1978 – 1983). Björgvin Már GK 149. Útg: Suðurnes h.f. Garði. (1983 – 1984). Sigurjón GK 49. Útg: Sæfugl h.f. Sandgerði. (1985 – 1986). 

Dreki HF 36. Útg: Dreki h.f. Hafnarfirði. (1986 – 1987). Árni á Bakka ÞH 380. Útg: Sæblik h.f. Kópaskeri. (1987 – 1989). Klettsvík VE 127. Útg: Heimaklettur h.f. Reykjavík. (1989). Kofri VE 127. Útg: Heimaklettur h.f. Reykjavík. (1989 – 1991). Árfari HF 182. Útg: Júlíus Stefánsson. Hafnarfirði. (1991 – 1992). Árfari SH 482. Útg: Júlíus Stefánsson. Hafnarfirði. (1992 – 1993). Árfari SH 482. Útg: Kristján Guðmundsson HF. Rifi. (1993). Talinn ónýtur tekinn af skrá 02.04.1993.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Áhugasamir kaupendur geta pantað sér dagatal á korri@internet.is

Færðu inn athugasemd