Sæberg ÁR 20

1143. Sæberg ÁR 20 ex Gestur SU 160. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sæberg ÁR 20 kemur hér að landi í Þorlákshöfn sem var fyrsta heimahöfn bátsins eftir að hann var keyptur til landsins frá Noregi.

Það var árið 1971 og fékk báturinn nafnið Gissur ÁR 6 sem hann bar til ársins 1985. Það át var hann seldur til Vopnafjarðar þar sem hann fékk nafnið Lýtingur NS 250.

Frá Vopnafirði fór báturinn á Djúpavog þar sem hann fékk nafnið Stjörnutindur SU 159. Þetta var árið 1988 og fimm árum síðar fékk hann nafnið Gestur SU 160.

Árið 1997 fékk hann nafnið Sæberg ÁR 20 og það nafn bar hann til loka en varð BA 24, BA 55,BA 224, SH 424 og HF 224. Bátuirnn var rifinn í Njarðvíkurslipp vorið 2012. 

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd