![](https://skipamyndir.com/wp-content/uploads/2023/11/1136.jpg?w=1024)
Línuskipið Rifsnes SH 44 er hér rétt ókomið til hafnar á Húsavík haustið 2006.
Rifsnesið, sem heitir Fjölnir GK 157 í dag, var smíðað í Mandal í Noregi 1968 en keypt til Skagastrandar árið 1970.
Þá hét það Skrolsvik T-84-TN en Skagstrendingar nefndu hann Örvar HU 14. Síðar varð hann Örvar BA 14 eftir að hann var seldur til Patreksfjarðar vorið 1974.
Rifsnesi var gert út frá Snæfellssnesi í yfir þrjátíu ár en það var keypt frá Patreksfirði til Hellisands í lok árs 1979. Báturinn vék svo fyrir nýju Rifsnes SH 44 sem keypt var frá Noregi haustið 2013.
Vísir hf. í Grindavík kaupir bátinn þegar nýja Rifsnesið kom í flotann og fær hann þá nafnið Ozean Breeze og var m.a gerður út í Kanada.
Eftir gagngerar breytingar í Gdansk í Pólland, sem m.a fólu í sér lengingu um níu metra auk þess sem íbúðahæð var sett undir brúna, kom báturinn til heimahafnar í Grindavík í desembermánuði 2015. Og þá undir því nafni sem hann ber í dag, sem er eins og fyrr segir Fjölnir GK 157.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution