Magnús EA 22 úr Grímsey kemur hér til hafnar á Húsavík um árið en hann hafði verið á dragnótaveiðum á Skjálfanda.
Magnús hét áður Sigmar NS 5 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1989.
Árið 1990 fékk hann nafnið Magnús EA 25 með heimahöfn í Grímsey.
Árið 1998 fékk hann nafnið Hafborg EA 152 sem hann bar til ársins 2006 er hann fær nafnið Glaður ÍS 221 með heimahöfn í Bolungarvík. Hann hafði verið EA 156 frá árinu 2005.
Frá árinu 2009 hefur báturinn, sem er 14,72 BT að stærð, borið nafnið Finni NS 21. Útgerð Hróðgeir hvíti ehf. á Bakkafirði.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution