
Egill ÍS 77 hét upphaflega Toppur GK 70 og smíðaður hjá Vélsmiðju Jónasar Þórðarsonar í Garðabæ, fyrir Sæmund Þórðarson á Vatnsleysuströnd.
Árið 1993 kaupir Smári Einarsson bátinn og nefnir Þröst RE 21.
Báturin var frekar stuttur í báða enda og mældist 9,9 brl. að stærð en árið 1995 varr báturinn lengdur, um fjóra metra í miðju og skutlengdur um tvo. Eftir það mældist hann 29 brl. að stærð.
Þröstur RE 21 var seldur til Þingeyrar árið 2008 þar sem hann fékk nafnið Egill ÍS 77.
Árið 2017 kom upp eldur í bátnum og skemmdist hann mikið í brunanum. Í kjölfarið leysti tryggingarfyrirtæki bátsins hann til sín og fékk hann skráninguna ÍS 877. Báturinn var síðar seldur en hver staðan er á honum í dag veit ég ekki.
Útgerð Egils ÍS 77 keypti nýjan bát sem fékk sama nafn og lesa má um hann hér.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution