Seifur og Aidaluna

2955. Seifur – IMO 9334868. Aida Luna. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023.

Hér koma myndir sem teknar voru fyrir viku síðan á Akureyri og sýna hafnsögubátinn Seif og farþegaskipið Aidaluna.

Aidaluna er 69,203 GT að stærð og var smíðað í Þýskalandi árið 2009 . Lengd skipsins er 251,9 metrar og það er 37,6 metrar breitt.

Skipið siglir undir fána Ítalíu og er með heimahöfn í Genóa þar sem útgerð þess er staðsett.

Seifur var smíðaður á Spáni árið 2018 og mælist 195 BT að stærð. Lengd hans er 22 metrar og breidd 9 metrar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd