Mávur SI 76

2376. Mávur SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004.

Mávur SI 76 leggur hér upp í handfæraróður frá Húsavík að kveldi 14. júlí árið 2004.

Þarna hafði Tjörnes ehf., sem Olgeir Sigurðsson stóð að, nýlega keypt bátinn sem fékk skömmu síðar nafnið Siggi Valli ÞH 44.

Þetta var fyrsti róður hjá nýjum eiganda en Mávur SI 76 var smíðaður árið 1999 hjá Trefjum í Hafnarfirði.

Báturinn, sem var tæpar 6 brl. að stærð, var seldur til Færeyja árið 2008.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd