1442. Snæfell EA 740 ex Andenesfisk III. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Snæfellið frá Hrísey er hér á toginu um árið og var myndin tekin undir það síðasta sem togarinn var gerður út hér við land. Snæfell EA 740. sem var 299 brl. að stærð, var smíðað hjá Sterekoder Mek. Verksted A/S í Kristiansund árið 1969 og hét … Halda áfram að lesa Snæfell EA 740
Flokkur: Togarar
Svalbakur við bryggju á Akureyri
1352. Svalbakur EA 302 ex Stella Karina. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Svalbakur EA 302 liggur hér við löndunarbryggju ÚA um árið en togarinn var smíðaður árið 1969. Útgerðarfélag Akureyringa keypti systurskipin Stellu Karinu og Stellu Kristinu frá Færeyjum árið 1973 og komu þau til heimahafnar á Akureyri í desember það ár. Skipin voru byggð í Sovikens … Halda áfram að lesa Svalbakur við bryggju á Akureyri
Gunnbjörn ÍS 302
Gunnbjörn ÍS 302 ex Framnes ÍS 708. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Skuttogarinn Gunnbjörn ÍS 302 frá Bolungarvík kemur hér til hafnar á Húsavík í ágústmánuði árið 2012 en hann var þá gerður út til úthafsrækjuveiða. Upphaflega hét hann Framnes 1 ÍS 708 og var smíðaður fyrir Þingeyringa í Flekkefjord árið 1973. Á miða Hauks Sigtryggs … Halda áfram að lesa Gunnbjörn ÍS 302
Húsey ÞH 382
1346. Húsey ÞH 382 ex Hólmanes SU 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Hér gefur að líta skuttogararnn Húsey ÞH 382 leggja af stað áleiðis til Danmerkur þar sem hann fór í brotajárn. Þetta var snemma í júnímánuð árið 2005. Húsey hét upphaflega og lengst af Hólmanes SU 1 og var einn af svokölluðum minni Spánartogurunum … Halda áfram að lesa Húsey ÞH 382
Nökkvi HU 15
1768. Nökkvi HU 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rækjutogarinn Nökkvi HU 15 frá Blönduósi lætur hér úr höfn á Húsavíkum árið, eftir löndun að ég held. Nökkvi var smíðaður hjá Slippstöðinni á Akureyri og sjósettur þar í janúarmánuði árið 1987. Hann var gerður út frá Blönduósi til ársins 2002 en Nökkvi var þá seldur til Færeyja. … Halda áfram að lesa Nökkvi HU 15
Vestri BA 63
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Patreksfjarðartogarinn Vestri BA 63 kom til Húsavíkur í morgun en hann er nú gerður út til úthafsrækjuveiða. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti togarann frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022. Í Noregi hét togarinn Tobis en … Halda áfram að lesa Vestri BA 63
Sólberg ÓF 1
2917. Sólberg ÓF 1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2017. Hér gefur að líta frystitogarann Sólberg ÓF 1 á siglingu á Ólafsfirði þann 19. maí árið 2017 en þá kom hann til landsins í fyrsta skipti. Togarinn var smíðaður fyrir Ramma hf. í Tersanskipasmíðastöðinni í Tyrklandi. Sólberg ÓF 1 er 79,85 metrar að lengd, 15,4 metrar á breidd … Halda áfram að lesa Sólberg ÓF 1
Kolbeinsey ÞH 10
1576. Kolbeinsey ÞH 10. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Skuttogarinn Kolbeinsey ÞH 10 er hér að leggja upp í veiðiferð frá Húsavík um árið en hún var gerð út frá Húsavík árin 1981 til 1997. Kolbeinsey var smíðuð hjá Slippstöðinni á Akureyri og var henni gefið nafn og hún sjósett þann 7. febrúar 1981. Til heimahafnar kom Kolbeinsey 10. maí sama ár. … Halda áfram að lesa Kolbeinsey ÞH 10
Vestri á Húsavík
3030. Vestri BA 63 ex Tobis. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2026. Rækjutogarinn Vestri BA 63 frá Patreksfirði var á Húsavík þar sem trollið var sett upp á bryggju til viðgerðar. Útgerðarfyrirtækið Vestri ehf. á Patreksfirði keypti togarann frá Noregi og kom hann í fyrsta skipti til heimahafnar þann 9. apríl árið 2022. Í Noregi hét togarinn Tobis en … Halda áfram að lesa Vestri á Húsavík
Geiri Péturs ÞH 344
2285. Geiri Péturs ÞH 344 ex Sverri Olason TG 730. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Rækjutogarinn Geiri Péturs ÞH 344 kemur hér að landi á Húsavík í febrúarmánuði árið 2003. Togarinn, sem áður hét Sverri Olason, var keyptur frá Færeyjum í desember árið 1996 en kom til heimahafnar á Húsavík í janúar 1997. Hér má lesa nánar … Halda áfram að lesa Geiri Péturs ÞH 344









