2711. Rún EA 251 ex Særún EA 351. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Rún EA 351 kemur hér til hafnar á Árskógsandi í dag eftir siglingu frá Dalvík. Báturinn, sem er af gerðinni Siglufjarðar-Seigur, var smíðaður á Siglufirði árið 2007 og hét upphaflega Lúkas ÍS 71 og var í eigu Álfsfells ehf. á Ísafirði. Síðar, eða … Halda áfram að lesa Rún EA 351
Flokkur: Smábátar
Vilborg ÞH 11
1432. Vilborg ÞH 11 ex Þórey ÞH 11. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Vilborg ÞH 11 kemur hér úr línuróðri um árið en Hreiðar Jósteinsson gerði hana út frá Húsavík. Báturinn sem lengi hét Von ÞH 54 var smíðaður í Neskaupstað árið 1975. Hann er 6 brl. að stærð og hét upphaflega Þórey NK 13 og síðan Þórey … Halda áfram að lesa Vilborg ÞH 11
Mávur SI 76
2376. Mávur SI 76. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004. Mávur SI 76 leggur hér upp í handfæraróður frá Húsavík að kveldi 14. júlí árið 2004. Þarna hafði Tjörnes ehf., sem Olgeir Sigurðsson stóð að, nýlega keypt bátinn sem fékk skömmu síðar nafnið Siggi Valli ÞH 44. Þetta var fyrsti róður hjá nýjum eiganda en Mávur SI … Halda áfram að lesa Mávur SI 76
Simma ST 7
1959. Simma ST 7 ex Sunna Líf KE 71. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2018. Simma ST 7,sem er hér að koma að bryggju á Drangsnesi sumarið 2018 hét upphaflega Esjar SH 75. Báturinn var smíðaður hjá Mánavör hf. á Skagaströnd árið 1988. Esjar var gerður út frá Rifi í um tíu ár en þá seldur á … Halda áfram að lesa Simma ST 7
Smyrill ÞH 57 á Skjálfanda í dag
6941. Smyrill ÞH 57 ex Hafdís SI 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Smyrill ÞH 57 er hér á siglingu á Skjálfanda í dag en hann var smíðaður í Bátasmiðju Guðmundar hf. í Hafnarfirði árið 1987. Hann bar nafnið Dúan þar til í ágúst 2021 eins og lesa má hér. Með því að smella á myndina … Halda áfram að lesa Smyrill ÞH 57 á Skjálfanda í dag
Eydís EA 44
6322. Eydís EA 44 ex Fleki EA 46. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2022. Eydís EA 44 leggur hér úr höfn á Dalvík eftir löndun og stefnan sett í heimahöfn í Hrísey. Myndin var tekin á síðustu dögum strandveiðitímabilsins í fyrra. Það er Eyfar ehf. sem gerir bátinn út en hann var smíðaður hjá Skel hf. árið … Halda áfram að lesa Eydís EA 44
Hugrún ÞH 240
6911. Hugrún ÞH 240 ex Tindaröst BA 94. Ljósmynd Hafþáor Hreiðarsson. Hugrún ÞH 240 frá Grenivík hét upphaflega Sóley GK 760 og var með heimahöfn í Sandgerði. Báturinn var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak hf. í Hafnarfirði árið 1987. Árið 1990 fékk hann nafnið Tindaröst GK 760 og sex árum seinna varð báturinn BA 94 með … Halda áfram að lesa Hugrún ÞH 240
Anna ÞH 131
6829. Anna ÞH 131. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Anna ÞH 131 frá Grenivík kemur hér að landi um árið en eigandi hennar var Friðrik Eyfjörð Jónsson á Finnastöðum við Grenivík. Skel bátsins var smíðaður hjá hjá Samtaki hf. Hafnafirði árið 1986 og smíði hans lokið á Grenivík. Sjá nánar á aba.is Báturinn hélt þessu nafni til … Halda áfram að lesa Anna ÞH 131
Þorgeir EA
6332. Þorgeir EA ex Dóra EA. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Þorgeir EA hét upphaflega Hannes lóðs VE 200 og var smíðaður árið 1980 í Bátasmiðjunni Mótun í Hafnarfirði. Árið 2004 fékk báturinn nafnið Dóra EA og ári síðar það nafn sem hann ber í dag, Þorgeir. 6332. Þorgeir EA ex Dóra EA. Ljósmyndir Hafþór Hreiðarsson … Halda áfram að lesa Þorgeir EA
Sirrý EA hét eitt sinn Vinur ÞH 73
5463. Sirrý ex Gúsi P SH 35. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2023. Sirrý EA siglir hér á Akureyrarpolli sl. sunnudag en báturinn tók þátt í skemmtisiglingu Sjómannadagsins. Saga bátsins, sem smíðaður var í húsakynnum Nóa Kristjánssonar, skipasmiðs árið 1968 af Rögnvaldi Árnasyni, húsgagnasmiði Akureyri og syni hans Þorkeli, er býsna löng og er ítarlega farið yfir … Halda áfram að lesa Sirrý EA hét eitt sinn Vinur ÞH 73









