Hafsúlan HF 77

1213. Hafsúlan HF 77 ex Látravík BA 66. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hafsúlan HF 77 er hér í slipp um árið en báturinn bar þetta nafn árin 1996-1997. Báturinn hét upphaflega Heimaey VE 1. Smíðuð í Slippstöðinni á Akureyri fyrir Sigurð Georgsson skipstjóra og Hraðfrystistöð Vestmannaeyja hf. árið 1972. Báturinn, sem upphaflega var 105 brl. að … Halda áfram að lesa Hafsúlan HF 77

Pétur Þór BA 44

1491. Pétur Þór BA 44 ex Hringur HU 3. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Pétur Þór BA 44 er 21 brl. að stærð, smíðaður í Skipasmíðastöð Jóns Jónassonar við Elliðaárvog í Reykjavík árið 1977. Báturinn var smíðaður fyrir Bolvíkinga og hét upphaflega Páll Helgi ÍS 142. Ári síðar var hann kominn til Bíldudals þar sem hann fékk … Halda áfram að lesa Pétur Þór BA 44

Sigmundur ÁR 20

784. Sigmundur ÁR 20 ex Hafliði ÁR 20. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1982. Árið er 1982, vetrarvertíð er í fullum gangi og Sigmundur ÁR 20 kemur hér að landi í Þorlákshöfn. Báturinn hét upphaflega Reykjanes GK 50 með heimahöfn í Hafnarfirði en hann var smíðaður árið 1954 þar í bæ. Nánar tiltekið í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. … Halda áfram að lesa Sigmundur ÁR 20

Draupnir ÁR 21

1171. Draupnir ÁR 21 ex Leifur Halldórsson SH 217. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2005. Draupnir ÁR 21 við bryggju í Þorlákshöfn sem var síðasta heimahöfn bátsins meðan hann var á íslenskri skipaskrá. Um bátinn, sem upphaflega hét Skálafell ÁR 20 á íslenskri skipaskrá, má lesa hér. Draupnir var seldur til Rússlands árið 2007 þar sem hann … Halda áfram að lesa Draupnir ÁR 21

Margrét GK 9 við bryggju

3020. Margrét GK 9. Ljósmynd Magnús Jónsson 2023. Hér gefur að líta Margréti GK 9 við bryggju í Njarðvík en Maggi Jóns tók myndina í gær. Margrét kom með flutningaskipi til landsins á dögunum en hún var smíðuð í Tyrklandi fyrir Skipasmíðastö Njarðvíkur hf. sem mun klára bátinn en kaupandi er Stakkavík ehf. í Grindavík. … Halda áfram að lesa Margrét GK 9 við bryggju

Arney KE 50 í Keflavíkurhöfn

1094. Arney KE 50 ex Arney SH 2. Ljósmynd úr einkasafni. Hér liggur Arney KE 50, sú fyrsta af þrem, í Keflavíkurhöfn en þaðan var hún gerð út á árunum 1973-1977. Báturinn var smíðaður í Skipasmíðastöðinni Dröfn hf. Hafnarfirði og lauk smíði hans árið 1969 en þá voru sjö ár síðan smíðin hófst. Báturinn, sem … Halda áfram að lesa Arney KE 50 í Keflavíkurhöfn