Þorsteinn í slipp á Húsavík

926. Þorsteinn GK 15 ex Þorsteinn EA 15. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Ég hef áður birt mynd af Þorsteini GK 15 í slipp á Húsavík en læt samt aðra vaða. Báturinn var smíðaður fyrir Aðalstein Loftsson á Dalvík í Fal­ken­berg í Svíþjóð árið 1946 og hefur alla tíð heitið Þorsteinn. Upphaflega EA 15, þá GK 15 … Halda áfram að lesa Þorsteinn í slipp á Húsavík

Guðbjörg Ósk SH 251

1354. Guðbjörg Ósk SH 251 ex Guðbjörg Ósk VE 151. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2001 Guðbjörg Ósk SH 251 lætur hér úr höfn í Sandgerði um sumarið 2001 en báturinn var með heimahöfn í Ólafsvík. Báturinn, sem er í dag skonnortan Hildur frá Húsavík, hét upphaflega Múli ÓF 5 og var smíðaður á Akureyri árið 1974.Lesa … Halda áfram að lesa Guðbjörg Ósk SH 251

Þorsteinn KE 10

310. Þorsteinn KE 10 ex Oddrún RE 126. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér gefur að líta Þorsteinn KE 10 sem upphaflega hét Breiðfirðingur SH 101 og var smíðaður í Danmörku árið 1955. Breiðfirðingur var 28 brl. að stærð búinn 140 hestafla Hundestad díeselvél. Hann var smíðaður fyrir Arnar Sigurðsson, Kristján Guðmundsson og Rögnvald Ólafsson á Hellisandi.  … Halda áfram að lesa Þorsteinn KE 10

Hildur SH 777 kemur að landi

3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Vigfús Markússon 2025. Vigfús Markússon skipstjóri á Tjaldi SH 270 tók á dögunum þessa mynd af dragnótabátnum Hildi SH 777 þar sem hann var að koma að landi á Rifi. Hér má lesa nánar um bátinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra. Með því að smella … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 kemur að landi

Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag

2957. Páll Jónsson GK 7. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar Sæmundsson tók þessar myndir í dag þega Páll Jónsson GK 7 lét úr höfn í Grindavík eftir að hafa landað þar fullfermi. Aflinn var um 440-450 kör sem gerir um 140-145 tonn og fékkst í 5 lögnum. Uppistaða aflans var langa eða 190 … Halda áfram að lesa Páll Jónsson GK 7 á útleið í dag

Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri

3047. 3047. Hildur SH 777 ex Pia Glanz L. 654. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hildur SH 777 er hér við slippkantinn á Akureyri í dag en Slippurinn Akureyri vinnur nú af krafti að smíði nýs vinnsludekks í bátinn. Báturinn sem Hraðfrystihús Hellisands keypti frá Danmörku í fyrra hét Pia Glanz, var smíðaður í Vest­værf­tet i Hvi­desand í Dan­mörku árið … Halda áfram að lesa Hildur SH 777 við slippkantinn á Akureyri