1900. Gullfaxi NK 6. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Dragnótabáturinn Gullfaxi NK 6 er hér við veiðar um árið og það við Langanes held ég. Báturinn var smíðaður fyrir Guðmund Þorleifsson í Neskaupstað í Noregi árið 1988. Gullfaxi varð ÓF 11 árið 1996 og var það til ársins 2001. Þá fékk Gullfaxi einkennisstafina GK 417 í stuttan … Halda áfram að lesa Gullfaxi NK 6
Flokkur: Bátar
Sólrún EA 351
162. Sólrún EA 351 ex Arnar ÁR 55. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Sólrún EA 351 hét upphaflega Ólafur Tryggvason SF 60 og var smíðaður í Noregi 1960 fyrir Tryggva Sigjónsson h/f á Hornafirði. 1976 er báturinn seldur til Hafnarfjarðar þar sem hann fær nafnið Hringur GK 18. Kaupendur Aðalsteinn og Helgi Einarssynir ásamt Ingimundi Jónssyni. Hringur var lengdur 1978. Selt í … Halda áfram að lesa Sólrún EA 351
Gullfaxi ÓF 11
1900. Gullfaxi ÓF 11 ex Gullfaxi NK 6. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér birtast myndir af Gullfaxa ÓF 11 teknar á Árskógssandi og Húsavík. Gullfaxi var upphaflega NK 6 og var smíðaður fyrir Guðmund Þorleifsson í Noregi árið 1988. Gullfaxi varð ÓF 11 árið 1996 og var það til ársins 2001. Þá fékk Gullfaxi einkennisstafina GK … Halda áfram að lesa Gullfaxi ÓF 11
Stapafell SH 26
1434. Stapafell SH 26 ex Leifur EA 888. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Dragnótabáturinn Stapafell SH 26 kemur hér til hafnar í Vestmannaeyjum um helgina en það er Bárður SH 81 ehf. sem gerir hann út. Útgerðin keypti bátinn í fyrra og er hann með heimahöfn á Arnarstapa. Um bátinn, sem lengi hét Þorleifur EA 88, er … Halda áfram að lesa Stapafell SH 26
Bergur Vigfús GK 100
1371. Bergur Vigfús GK 100 ex Guðfinnur KE 19. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2003. Bergur Vigfús GK 100 kemur hér að landi í Grindavík vorið 2003 en báturinn bar þetta nafn um tíma það ár. Upphaflega Vingþór NS 341 smíðaður árið 1974 á Seyðisfirði af Vélsmiðjunni Stál. Lengi vel Guðfinnur KE 19 og um bátinn má … Halda áfram að lesa Bergur Vigfús GK 100
Guðfinnur KE 19
1371. Guðfinnur KE 19 ex Sturlaugur ÁR 7. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Guðfinnur KE 19 hét upphaflega Vingþór NS 341 og var smíðaður árið 1974 á Seyðisfirði af Vélsmiðjunni Stál. Vingþór var gerður út frá Seyðisfirði til ársins 1980 en þá var hann seldur til Þorlákshafnar þar sem hann fékk nafnið Sturlaugur ÁR 7. Árið 1982 … Halda áfram að lesa Guðfinnur KE 19
Björg Jónsdóttir ÞH 321
263. Björg Jónsdóttir ÞH 321 ex Gandí VE 171. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Björg Jónsdóttir ÞH 321 er hér í Húsavíkurhöfn um árið, sennilega 1986, en hún var keypt hingað í janúar 1985. Báturinn hét upphaflega Þorbjörn II GK 541 frá Grindavík og var smíðaður árið 1964 fyrir Hraðfrystihús Þórkötlustaða h/f í Grindavík. Smíðin fór fram … Halda áfram að lesa Björg Jónsdóttir ÞH 321
Hafborgin dregur netin á Eyjafirði
2940. Hafborg EA 152. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar náði þesum myndum af Hafborginni EA 152 þar sem hún var að draga netin á Eyjafirði. Ljósmyndarinn skrifar svo síðu sinni Báta og bryggjurölt: Hafborg var við netaveiðar inni á Eyjafirði í dag en hún stundar þessa dagana vísindaveiðar á vegum Hafró eða svokallað … Halda áfram að lesa Hafborgin dregur netin á Eyjafirði
Rán KE 37
728. Rán KE 37 ex Rán AK 34. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Rán KE 37 kemur hér tilhafnar í Njarðvík um árið en báturinn var 58 brl. að stærð. Rán var smíðuð árið 1958 hjá Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. á Ísafirði og bar einkennisstafin ÍS 51 og heimahöfnin var Hnífsdalur. Átta árum síðar er báturinn kominn … Halda áfram að lesa Rán KE 37
Ástríkur VE 3
1587. Ástríkur VE 3 ex Belló BA 13. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson 2025. Ástríkur VE 3 kom til heimahafnar í Vestmannaeyjum í gær en þangað var báturinn keyptur á dögunum. Báturinn bar áður nafnið Belló BA 13 en hét upphaflega Már NS 87 og var smíðaður árið 1981 í Bátalóni í Hafnarfirði. Hér má lesa sögu … Halda áfram að lesa Ástríkur VE 3









