936. Friðrik Bergmann SH 240 ex Æskan SF 140. Ljósmynd Alfons. Friðrik Bergmann SH 240 kemur hér að landi í Ólafsvík um árið en það var Fengur hf. þar í bæ sem gerði hann út. Friðrik Bergmannhét upphaflega Æskan SI 140 og var smíðuð 1963 hjá Raun Bybergs Skibsbyggeri as. í Odense í Danmörku fyrir Æskuna … Halda áfram að lesa Friðrik Bergmann SH 240
Flokkur: Bátar
Bervík SH 343
936. Bervík SH 343 ex Friðrik Bergmann SH 240. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Bervík SH 343 hét upphaflega Æskan SI 140 og var smíðuð 1963 hjá Raun Bybergs Skibsbyggeri as. í Odense í Danmörku fyrir Æskuna hf. á Siglufirði. Hún mældist í upphafi 82 brl. að stærð en var síðan endurmæld niður í 72 brl. Aðalvélin var … Halda áfram að lesa Bervík SH 343
Valbjörn ÍS 307
1686. Valbjörn ÍS 307 ex Gunnbjörn ÍS 302. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2012. Rækjubáturinn Valbjörn ÍS 307 kemur hér til hafnar á Húsavík í septembermánuði árið 2012. Það spáði brælu og bátarnir leituðu hafnar. Valbjörn var smíðaður í Njarðvík árið 1984 og hét upphaflega Haukur Böðvarsson ÍS 847. Báturinn, sem var 57 brl. að stærð og … Halda áfram að lesa Valbjörn ÍS 307
Haförn og Naustavík
1334. Haförn EA 155 - 1417. Naustavík EA 151 ex Sólrún EA 251. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson. Hér liggja saman við bryggju á Akureyri síðustu tveir eikarbátarnir sem Skipasmíðastöð KEA smíðaði. Haförn EA 155 er sá sem liggur við bryggjuna og utan á honum Naustavík EA 151 sem upphaflega hét Sólrún EA 251. Báðir bátarnir smíðaðir … Halda áfram að lesa Haförn og Naustavík
Margrét GK 27
1458. Margrét GK 27 ex Ísey EA 40. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af dragnótabátnum Margréti GK 27 fyrir rétt vestan Grindavík í gær. Margrét hét áður Ísey EA 40 en upphaflega Langanes ÞH 321 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar h/f árið 1976. Hann var fjórði báturinn sem stöðin … Halda áfram að lesa Margrét GK 27
Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík
3027. Hulda Björnsdóttir GK 11. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Jón Steinar tók þessar myndir af togaranum Huldu Björnsdóttur GK 11 þegar hún hélt til veiða frá Grindavík í dag. Það er útgerðarfélagið Ganti ehf í Grindavík sem á og gerir togarann út en hann var smíðaður hjá skipasmíðastöðinni Astilleros Armon í Gijon á Spáni … Halda áfram að lesa Hulda Björnsdóttir GK 11 á útleið frá Grindavík
Skúli fógeti VE 185
1082. Skúli fógeti VE 185 ex Albert Ólafsson KE 39. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Það hefur áður komið mynd frá Tryggva af Skúla fógeta VE 185 á síðunni en þar var hann kominn með hvalbakinn. Hér birtist hann hvalbakslaus en báturinn hét upphaflega Fróði ÁR 33 og var smíðaður í Skipavík í Stykkishólmi árið 1969. Fróði … Halda áfram að lesa Skúli fógeti VE 185
Hrafnreyður KÓ 100
1324. Hrafnreyður KÓ 100 ex Valur ÍS 18. Ljósmynd Jón Páll Ásgeirsson 2013. Hrefnubátnum Hrafnreyður KÓ 100 er hér á mynd sem Jón Páll Ásgeirsson tók á miðunum sumarið 2013. Báturinn var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973 og er 101 brl. að stærð. Hann hét upphaflega Ottó Wathne NS 90 og var í … Halda áfram að lesa Hrafnreyður KÓ 100
Jökull útbúinn á grálúðunet
2991. Jökull ÞH 299 ex ex Nanoq GR 1-1. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. 11. maí er lokadagur vetrarvertíðar samkvæmt gömlu tímatali og af því tilefni birtist hér mynd sem tekin var við Húsavíkurhöfn í morgun. Þar var verið að útbúa Jökul ÞH 299 til grálúðuveiða í net en hann kom á dögunum norður eftir vetrarvertíð. Byrjaði í Breiðafirði en … Halda áfram að lesa Jökull útbúinn á grálúðunet
Gullfaxi NK 6
1900. Gullfaxi NK 6. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson. Dragnótabáturinn Gullfaxi NK 6 er hér við veiðar um árið og það við Langanes held ég. Báturinn var smíðaður fyrir Guðmund Þorleifsson í Neskaupstað í Noregi árið 1988. Gullfaxi varð ÓF 11 árið 1996 og var það til ársins 2001. Þá fékk Gullfaxi einkennisstafina GK 417 í stuttan … Halda áfram að lesa Gullfaxi NK 6









