Hafbjörg VE 115

903. Hafbjörg VE 115 ex Hafbjörg ÁR 16. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hafbjörg VE 115 hét upphaflega Cæsar ÍS 47 og var smíðaður í Skipasmíðastöð Marselíusar Bernharðssonar hf. Ísafirði árið 1942.  Hafbjörg var síðasta nafn bátsins sem bar alls sjö nöfn í gegnum tíðina en allmarga einkennisstafi og númer. Um það má lesa hér en báturinn, … Halda áfram að lesa Hafbjörg VE 115

Eiður ÓF 13

1611. Eiður ÓF 13 ex Eiður EA 13. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2009. Dragnótabáturinn Eiður ÓF 13 kemur hér til hafnar á Húsavík vorið 2009 en upphaflega hét hann Valur RE 7. Báturinn var smíðaður í Bátalóni í Hafnarfirði og var afhentur frá stöðinni árið 1982. Hann var síðan lengdur og breikkaður árið 1996. Árið 1989 … Halda áfram að lesa Eiður ÓF 13

Bárður

2965. Bárður SH 81. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Hér kemur mynd af Bárði SH 81 koma til hafnar á Húsavík fyrir rúmum mánuði síðan. Bárður SH 81 var smíðaður fyrir Bárð SH 81 ehf. og fór smíði bátsins fram í Bredgaard bátasmiðjunni í Rødby í Danmörku. Bárður kom til landsins í nóvembermánuði 2019. Bárður SH 81, sem er … Halda áfram að lesa Bárður

Hlífar Pétur NK 15

923. Hlífar Pétur NK 15 ex Skálaberg ÞH 244. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson. Hlífar Pétur NK 15 lætur hér úr höfn í Vestmannaeyjum um árið en myndina tók Tryggvi Sigurðsson. Saltfang hf. á Neskaupstað keypti bátinn frá Húsavík árið 1990 og átti hann í um þrjú ár. Báturinn var smíðaður árið 1957 í Danmörku fyrir Sigvalda … Halda áfram að lesa Hlífar Pétur NK 15

Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn

288. Jökull SK 16 sokkinn í Hafnarfjarðarhöfn. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2025. Eikarbáturinn Jökull SK 16 sökk í Hafnarfjarðarhöfn um helgina og það ekki í fyrsta skipti. Báturinn hefur legið um allanga hríð við bryggju í Hafnarfirði og sökk þar í fyrra skiptið árið 2020. Líkt og þá lá Þorsteinn ÞH 115 utan á Jökli … Halda áfram að lesa Jökull SK 16 sökk öðru sinni í Hafnarfjarðarhöfn

MSC Magnifica við bryggju í La Spezia

IMO 9387085. MSC Magnifica. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2025. Skemmtiferðaskipið MCS Magnifica var í höfn i La Spezia á Ítalíu í dag og lá vel við höggi til myndatöku. Skipið sem skráð er í Panama var smíðað í Frakklandi árið 2010 og er 298,3 metrar að lengd. Breidd þess er er 32,3 metrar og það mælist … Halda áfram að lesa MSC Magnifica við bryggju í La Spezia