
Strandveiðibáturinn Öngull GK 54 kemur hér til hafnar í Sandgerði sumarið 2012 en hann átti heimahöfn í Njarðvík.
Báturinn hét upphaflega Kristján EA 178 og var smíðaður í Danmörku árið 1982. Árið 1987 var hann seldur í Skagafjörðinn þar sem hann fékk nafnið Þröstur SK 14 með heimahöfn á Sauðárkróki.
Árið 2010 fær hann það nafn sem hann ber á myndinni, Öngull GK 54. Þrem árum síðar var Öngull kominn vestur á Patreksfjörð og orðinn BA 21.
Árið 2016 var báturinn kominn í núllflokk hjá Fiskistofu og er ekki að finna á skipaskrá í dag.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution