
Dráttarbátur Skagafjarðarhafna, Grettir sterki, kom til Húsavíkur í dag og var þessi mynd tekin við það tækifæri.
Grettir sterki, sem var að draga dýpkunarskipið Reyni til Húsavíkur, var smíðaður hjá Damen Shipyards í Gorinchem í Hollandi árið 2007.
Báturinn er 20 metra langur, breidd hans er sjö metrar og hann mælist 95 BT að stærð.
Hann er með 28 tonna togkraft og tvær 1000 hestafla Caterpillar aðalvélar.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution