Árni KE 89

2150. Árni KE 89 ex Rúna II RE 250. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2004.

Árni KE 89 var keyptur til Keflavíkur í ágústmánuði árið 2001 en hann hét áður Rúna RE 150. Reyndar Rúna II RE 250 í um mánaðartíma áður en hann fékk nafnið Árni.

Á myndinni er báturinn að koma til hafnar í Sandgerði í febrúarmánuði árið 2004.

Árni var gerður út frá Keflavík til ársins 2006 en þá var hann seldur norður á Hvammstanga þar sem hann fékk nafnið Harpa II HU 44 og ári síðar Harpa HU 4.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd