Haförn EA 155

Haförn EA 155. Ljósmynd Hreiðar Olgeirsson.

Haförn EA 155 frá Hrísey er hér að draga netin á Breiðafirði um árið, 1982 sennilega, og í fjarska má sjá Auðbjörgu EA 22 og Björgu Jónsdóttur ÞH 321.

Báturin, sem var 27 brl. að stærð, var smíðaður árið 1973 í Skipasmíðastöð KEA á Akureyri fyrir Jóhann Sigurbjörnsson í Hrísey sem jafnframt var skipstjóri.

Haförn EA 155 var gerður út frá Hrísey til ársins 1988 en þá var báturinn seldur til Tálknafjarðar. Þar hélt hann nafni sínu en varð BA 327.

Árið 1993 var Haförn seldur í Stykkishólm þar sem hann fékk nafnið Dalaröst SH 107. Þann 7. mars 1993 lenti Dalaröstin á skeri skammt norðan við Stykkishólm og eyðilagðist þar.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd