Berghildur SK 137

1564. Berghildur SK 137 ex Faxavík GK 727. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Berghildur SK 137, sem var 16 brl. að stærð, hét upphaflega Gróa KE 51 og var smíðuð hjá Dráttarbraut Keflavíkur árið 1980.

Árið 1982 fékk báturinn nafnið Kristín Björg KE 51 og ári síðar fékk hann nafnið Byr ÍS 77 sem hann bar til ársins 1987. Það ár fékk hann nafnið Harpa II GK 101 með heimahöfn í Grindavík.

Árið 1988 fékk hann nafnið Faxavík GK 727 en árið síðar var Faxavík seld norður á Hofsós þar sem báturinn fékk sem fyrr segir nafnið Berghildur SK 137.

Berghildur SK 137 var dæmd ónýt og tekin af skipaskrá sumarið 1991. Hún hafði skemst mikið þegar hún slitnað frá bryggju á Hofsósi og rak upp í fjörugrjótið í miklu fárviðri í byrjun febrúar það ár.

1564. Berghildur SK 137 ex Faxavík GK 727. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 1991.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd