Brynjólfur ÁR 4

225. Brynjólfur ÁR 4 ex Skálafell SF 95. Ljósmynd Tryggvi Sigurðsson.

Brynjólfur ÁR 4 hét upphaflega Þorlákur Ingimundarson ÍS 15 frá Bolungarvík, báturinn sem var 115 brl. að stærð, var smíðaður í Danmörku árið 1963.

Árið 1965 var báturinn seldur til Ólafsfjarðar þar sem hann fékk nafnið Þorleifur ÓF 60. Fimm áum síðar fékk báturinn nafnið Ágúst Guðmundsson GK 95 með heimahöfn í Vogum á Vatnsleysuströnd.

Eftir tólf ára útgerð úr Vogum var báturinn seldur austur á Hornafjörð þar sem hann fékk nafnið Skálafell SF 95.

Það var svo vorið 1984 sem báturinn var keyptur til Þorlákshafnar og fékk nafnið Brynjólfur ÁR 4.

Árið 1991 fékk báturinn nafnið Brynja SH 370 og ári síðar var hann seldur til Noregs og úreltur á móti nýjum Tjaldi SH 270.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can wiew them in higher resolution

Færðu inn athugasemd