
Snæfellið frá Hrísey er hér á toginu um árið og var myndin tekin undir það síðasta sem togarinn var gerður út hér við land.
Snæfell EA 740. sem var 299 brl. að stærð, var smíðað hjá Sterekoder Mek. Verksted A/S í Kristiansund árið 1969 og hét upphaflega Andenesfisk III.
Útgerðarfélag KEA hf. keypti togarann til landsins haustið 1975 og gaf honum nafnið Snæfell EA 740 með heimahöfn í Hrísey.
Snæfellið var selt til Noregs þegar nýtt og glæsilegt Snæfell EA 740 leysti það af hólmi haustið 1988.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution