
Hér er verið að landa úr netabátnum Sigurþóri GK 43 í Grindavíkurhöfn en þaðan var báturinn gerður út árin 1983 til 1991.
Sigurþór hét upphaflega Árni ÓF 44 og var smíðaður 1975 hjá Skipasmíðastöð Guðmundar Lárussonar á Skagaströnd.
Báturinn, sem var rétt tæplega 30 brl. að stærð, var smíðaður fyrir Árna sf. á Ólafsfirði en árið 1983 var hann seldur til Grindavíkur þar sem hann fékk nafnið Sigurþór GK 43.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution