
Faxavík GK 727 liggur hér við bryggju á Akureyri um árið og hygg ég að þarna hafi verið nýbúið að kaupa bátinn á Hofsós þar sem hann fékk nafnið Berghildur SK 137.
Upphaflega hét báturinn, sem var 16 brl. að stærð, Gróa KE 51 og var smíðaður hjá Dráttarbraut Keflavíkur árið 1980.
Árið 1982 fékk báturinn nafnið Kristín Björg KE 51 og ári síðar fékk hann nafnið Byr ÍS 77 sem hann bar til ársins 1987. Það ár fékk hann nafnið Harpa II GK 101 með heimahöfn í Grindavík.
Árið 1988 fékk hann það nafn sem hann ber á myndinni en árið síðar var Faxavík seld norður á Hofsós þar sem báturinn fékk sem fyrr segir nafnið Berghildur SK 137.
Berghildur SK 137 var dæmd ónýt og tekin af skipaskrá sumarið 1991. Hún hafði skemst mikið þegar hún slitnað frá bryggju á Hofsósi og rak upp í fjörugrjótið í miklu fárviðri í byrjun febrúar það ár.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution