
Dragnótabáturinn Sjöfn EA 142 frá Grenivík kemur hér til hafnar á Húsavík í septemberbyrjun árið 2007.
Báturinn hét upphaflega Helga Sigmars NS 6 og var smíðaður í Vélsmiðju Seyðisfjarðar árið 1987.
Helga Sigmars var lengd árið1997 og mældist eftir það 15 brl. að stærð en upphaflega var hún 9,9 brl. að stærð.
Hún var gerð út fá Seyðisfirði til ársins 1999 þá var báturinn seldur til Grímsyejar þar sem hann fékk nafnið Sæbjörg EA 184.
Frá Grímsey fór báturinn til Grenivíkur árið 2007 og þar var honum gefið nafnið Sjöfn EA 142.
Sjöfn var seld til Stykkishólms árið 2016 og varð SH 707 en frá árinu 2021 hefur Sjöfn verið SH 5.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution