
Hér gefur að líta skuttogararnn Húsey ÞH 382 leggja af stað áleiðis til Danmerkur þar sem hann fór í brotajárn. Þetta var snemma í júnímánuð árið 2005.
Húsey hét upphaflega og lengst af Hólmanes SU 1 og var einn af svokölluðum minni Spánartogurunum sem smíðaðir voru fyrir Íslendinga á Spáni.
Hólmanesið var smíðað hjá skipasmíðastöðinni Construcciones Navales P. Freire S. A. í Vigo og kom til heimahafnar á Eskifirði 7. febrúar árið 1974.
Í ársbyrun 2004 er Íshaf hf. á Húsavík orðinn eigandi togarans sem fékk nafnið Húsey ÞH 382.
Hér má lesa nánar um togarann.


Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution