
Snæbjörg ÓF 4 frá Ólafsfirði hét upphaflega Hamraborg SH 222 og var smíðuð árið 1975 hjá Vélsmiðjunni Herði hf. í Sandgerði.
Hamraborg S 222 átti heimahöfn í Grundarfirði.
Magnús Gamalíesson hf. keypti bátinn árið 1986 en þá bar hann nafnið Jón Pétur ST 21. Báturinn fékk nafnið Snæbjörg ÓF 4 og bar þessa einkennisstafi til ársins 1999 er báturinn var seldur frá Ólafsfirði.
Hér má lesa nánar um bátinn sem heitir í dag Jón Hákon BA 61.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can wiew them in higher resolution