
Sigurbjörg SH 48 var 17 brl. að stærð og smíðuð á Fáskrúðsfirði árið 1970. Upphaflega var hún upphaflega ST 55 með heimahöfn á Hólamvík.
Báturinn hét Sigurbjörg alla tíð, ST til ársins 1994 er hún varð SH 204 og 1996 fékk hún það númer sem hún ber á myndinni. Þ.e.a.s SH 48.
Árið 2004 var báturinn skráður Sigurbjörg KE 16 og um vorið sökk hann við Reykjanes. Mannbjörg varð.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.