
Hafdís SK 44 heitir í dag Grímsey ST 2 og er gerð út frá Drangsnesi en upphaflega hét báturinn Stapavík AK 132.
Báturinn, sem er tæplega 60 BT að stærð, var smíðaður á Ísafirði 1998.
Það var árið 2023 sem báturinn fékk nafnið Hafdís SK 4 en það breyttist í SK 44 í fyrravetur þegar FISK Seafood keypti nýja og stærri Hafdísi.
Það var svo í sumarbyrjun í fyrra sem báturinn fékk nafnið Grímsey ST 2.
Á árunum 2005 til 2023 hét báturinn Hafborg og var gerður út frá Grímsey.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution.