Ásgeir ÞH 198

1790. Ásgeir ÞH 198 ex Kristján EA 178. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson 2007.

Grásleppurbáturinn Ásgeir ÞH 198 kemur hér úr róðri þann 21. mars árið 2007 en hann var gerður út frá Húsavík árin 1997 til 2012.

2012 var hann var seldur til Dalvíkur og fékk nafnið Dalborg EA 317.

Fjórum árum síðar var báturinn seldur til Skagastrandar þar sem hann fékk nafnið Kambur HU 24 og það nafn ber hann enn þann dag í dag.

Upphaflega hét báturinn Kristján EA 178 og var smíðaður árið 1987 af Baldri Halldórssyni á Hlíðarenda við Akureyri.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution.

Færðu inn athugasemd