Guðbjörg kemur að landi

3020. Guðbjörg GK 9. Ljósmynd Jón Steinar Sæmundsson 2026.

Jón Steinar tók þessar myndir í gær en þær sýna línubátinn Guðbjörgu GK 9 koma að landi í Grindavík.

Guðbjörg GK 9 er 13 metra löng og 5,5 metra breið, smíðuð úr stáli og áli en skrokkur bátsins er úr stáli neðan millidekks og ofan þess er smíðin öll úr áli.

Það er Stakkavík í Grindavík sem gerir Guðbjörgina út.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd