
Halla ÍS 3 hét upphaflega Ottó Wathne NS 90 og var smíðaður hjá Vélsmiðju Seyðisfjarðar hf. árið 1973.
Ottó Wathne NS 90 var seldur til Hornafjarðar árið 1981 þar sem hann fékk nafnið Bjarni Gíslason SF 90.
Árið 2005 var báturinn seldur til Vestmannaeyja og varð Bjarni Gíslason VE 30, 2007 fékk hann nafnið Valur ÍS 18, heimahöfn Súðavík.
Árið 2010 fékk hann nafnið Hrafnreyður KÓ 100 og níu árum síðar, eða 2019, fékk hann nafnið Halla ÍS 3 með heimahöfn á Flateyri.
Halla var seld úr landi árið 2021.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution