
Steini Ólafs Björns ÞH 14 hét upphaflega Eldey GK 119 og var smíðaður hjá Bátagerðinni Samtak í Hafnarfirðir árið 1998.
Ári síðar var báturinn seldur út í Grímsey þar sem hann fékk nafnið Hafaldan EA 87. Árið 2005 var báturinn seldur vestur á Súðavík þar sem hann fékk nafnið Svanlaug Björg ÍS 25.
Það var svo árið 2007 sem báturinn fékk nafnið Steini Ólafs Björns ÞH 14 með heimahöfn á Kópaskeri.
Í ársbyrjun árið 2008 var Steini Ólafs Björns ÞH 14 seldur til Færeyja og tekinn af skipaskrá 30. janúar 2008.
Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.
By clicking on the images you can view them in higher resolution