Skálafell ÁR 205

1311. Skálafell SH 205 ex Rík ÁR 205. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Skálafell ÁR 205 lætur hér úr höfn í Þorlákshöfn áleiðis á miðin þar sem leggja átti netin.

Skálafell hét upphaflega Stefán Guðfinnur SU 78 og var smíðaður hjá Trésmiðju Austurlands hf. á Fáskrúðsfirði árið 1973.

Árið 1975 var báturinn seldur til Vopnafjarðar þar sem hann fékk nafnið Rita NS 13.

Frá árinu 1979 bar báturinn nöfnin Rúna NS 131, Rúna SH 35, Rúna SH 101, Rúna SF 101, Hafbjörg HU 100, Brík ÓF 11, Rík ÁR 205 og árið 1993 Skálafell ÁR 205.

Árið 2005 fékk báturinn nafnið Hildur ÞH 38 með heimahöfn á Raufarhöfn og það nafn bar báturinn þegar hann sökk á Þistilfirði í maí 2008.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd