Ívar SH 324

1930. Ívar SH 324 ex Ívar NK 124. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Ívar SH 324 hét upphaflega Jón Pétur ST 21 og var smíðaður í Skipasmiðjunni Herði hf. í Njarðvík árið 1988.

Báturinn, sem var 10 brl. að stærð, var með heimahöfn á Hólmavík en það stóð ekki lengi því haustið 1988 var hann seldur til Ólafsvíkur og fékk hann nafnið Ívar SH 287.

Báturinn var lengdur árið 1991 og mældist eftir það tæplega 12 brl. að stærð en um það leyti var Ívar kominn til Neskaupstaðar þar sem hann fékk einkennisstafina NK og númerið 124.

Rétt fyrir aldarmótin var Ívar aftur kominn á Snæfellsnesið og var nú SH 324 og heimahöfnin lengst af Ólafsvík.

Árið 2003 fékk báturinn nafnið Kópur GK 19 og heimahöfnin Í Sandgerði.

Frá árinu 2005 hét báturinn Dísa GK 19 og bar það nafn þegar hann var seldur til Færeyja og tekinn af skipaskrá í febrúar árið 2010.

Með því að smella á myndina er hægt að skoða hana í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd