Örn KE 13

1012. Örn KE 13 ex Örn SK 50. Ljósmynd Hafþór Hreiðarsson.

Sumarið 1987 kom loðnuskipið Örn KE 13 úr miklum breytingum sem framkvæmdar voru í V-Þýskalandi.

Helstu breytingarnar voru lenging á skipinu um sex metra, sett á það perustefni og því slegið út að aftan og breytt fyrir togveiðar.

Á myndinn er Örn að koma til hafnar á Húsavík en þaðan var hann oft á tíðum gerður út til úthafsrækjuveiða. M.a annars undir skipstjórn Eiríks Sigurðssonar.

Með því að smella á myndirnar er hægt að skoða þær í hærri upplausn.

By clicking on the images you can view them in higher resolution

Færðu inn athugasemd